Sunday, November 29, 2009


Fyrsti sunnudagur í aðventu í dag og aðventukransinn kominn upp. Gamli pappírsvafði kransinn frá í hitteðfyrra er alltaf jafn flottur vafinn með gylltum vír og perlum. Ég hef stundum sett hvítar jólakúlur og stundum greni í kringum hann. Þennan fallega engil fann ég á einhverjum nytjamarkaði, hann var brotinn, var áður fastur við eitthvern kertastjaka og var alveg það sem vantaði á kransinn minn þetta árið.